25. feb 2020
OrkuveitanÞriðjudaginn 3. mars 2020 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokkum Orkuveitu Reykjavíkur, OR020934 GB og OR180255 GB.
Áður hafa verið gefin út bréf í flokkunum að nafnvirði 3.200 m.kr. í OR020934 GB og að nafnvirði 12.371 m.kr. í OR0180255 GB
Útgáfa skuldabréfaflokkanna er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2020 sem nemur allt að 13,1 ma.kr.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable bond markaði Nasdaq á Íslandi.