16. feb 2017
OrkuveitanStjórn Orku náttúrunnar (ON), dótturfélags alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR), hefur ákveðið að lækka fyrri fjárfestingaspá til og með árinu 2022 um 8 milljarða króna.
Eftir nákvæma greiningu jarðvísinda- og tæknifólks á gufuforða Hellisheiðarvirkjunar, stærstu virkjunar ON, breytti stjórn fyrirtækisins fjárfestingaspá til lækkunar. Sparnaðurinn felst einkum í fækkun fyrirhugaðra borholna frá fyrri áformum og tengingu þeirra við virkjunina. Fyrri fjárfestingaspá ON var hluti þeirrar fjárhagsspár OR fyrir 2017 og fimm ára áætlunar fyrir árin 2018-2022 sem birt var 28. nóvember 2016.