28. nóv 2016
OrkuveitanAfkoma Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er traust og góð. Tekjur eru stöðugar sem og gjöld en áhrifa nýlegra kjarasamninga gætir nokkuð í uppgjöri fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016. Rekstrarhagnaður (EBIT) og framlegð (EBITDA) eru svipuð og á sama tímabili síðustu ár. Styrking gengis íslensku krónunnar hefur jákvæð áhrif á hvort tveggja rekstrarniðurstöðu tímabilsins og skuldastöðuna í lok þess.
Nettóskuldir OR hafa lækkað um 17,8 milljarða króna frá áramótum. Þar af hefur styrking krónunnar skilað 3,8 milljörðum til lækkunar skulda. Þessi fjárhæð færist OR til tekna og rekstrarniðurstaða tímabilsins er hagnaður sem nemur 9,4 milljörðum króna.
Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016 var samþykktur af stjórn fyrirtækisins í dag.
Árshlutareikningur samstæðu F3 2016
Lykiltölur fjármála OR F3 2016
Stöðuskýrsla aðgerðaáætlunar OR F3 2016
Í gær tilkynntu Veitur um gjaldskrárbreytingar sem verða um áramót. Veitur er dótturfyrirtæki OR sem sér um rekstur hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu víða á sunnan- og vestanverðu landinu. Sparnaður í rekstrinum gerir fyrirtækinu kleift að lækka gjaldskrá rafmagnsdreifingar um 5,8%. Rafveita Veitna þjónar Reykjavík, Akranesi, Mosfellsbæ, Kópavogi og meirihluta Garðabæjar. Gjaldskrá vatnsveitnanna lækkar um allt að 11,2% en miklar fjárfestingar í fráveitum og hitaveitum leyfa ekki lækkun á þeim gjaldskrám.
Viðskiptavinir okkar njóta árangurs í rekstri samstæðunnar um áramótin með lækkuðum gjöldum fyrir hluta veituþjónustunnar. Sparnaður í rekstrinum gerir okkur skylt að skila ávinningnum til viðskiptavina þeirra veitna sem standa best. Þannig virkar veitureksturinn. Verð á þjónustu sem seld er í samkeppni við aðra lýtur öðrum lögmálum. Á þeim mörkuðum getur fólk flutt viðskipti sín annað ef við stöndum okkur ekki.
Fjárhæðir eru í milljónum króna | F3 2012 | F3 2013 | F3 2014 | F3 2015 | F3 2016 |
Rekstrartekjur | 27.286 | 28.806 | 26.960 | 28.951 | 29.921 |
Rekstrarkostnaður | (9.449) | (9.794) | (9.195) | (10.718) | (11.785) |
þ.a. orkukaup og flutningur | (3.490) | (3.902) | (3.644) | (4.645) | (4.555) |
EBITDA | 17.838 | 19.012 | 17.766 | 18.234 | 18.136 |
Afskriftir | (6.862) | (6.251) | (6.510) | (7.172) | (7.584) |
Rekstrarhagnaður EBIT | 10.976 | 12.762 | 11.256 | 11.061 | 10.551 |
Afkoma tímabilsins | 2.580 | 5.796 | 7.879 | 3.093 | 9.368 |
Sjóðstreymi: | |||||
Greidd vaxtagjöld | (3.869) | (3.448) | (3.420) | (3.181) | (2.600) |
Handbært fé frá rekstri | 15.572 | 16.934 | 17.885 | 18.126 | 17.305 |