23. nóv 2020
OrkuveitanRekstur Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið stöðugur fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2020, fyrirtækið er vel í stakk búið til að flýta og auka þannig við fjárfestingar til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs á íslenskt efnahagslíf. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 11,2 milljörðum króna en var 11,1 milljarður á sama tímabili í fyrra og framlegð rekstursins var 20,8 milljarðar eða 800 milljónum króna meiri en í uppgjöri eftir þriðja ársfjórðung 2019.
Árshlutareikningur fyrstu níu mánaða ársins var samþykktur á fundi stjórnar OR í dag. Reikningurinn er uppgjör allrar samstæðunnar, sem auk móðurfélagsins telur Veitur, Orku náttúrunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Carbfix.
OR Árshlutareikningur samstæðu F3 2020
Í takti við uppbyggingu á helstu þjónustusvæðum fyrirtækisins og ákvörðun um viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar, voru fjárfestingar með mesta móti á fyrstu þremur fjórðungum ársins og námu 11,4 milljörðum króna. Helstu fjárfestingar tímabilsins tengjast uppbyggingu og viðhaldi veitukerfanna – vatnsveitu, fráveitu, hitaveitu og rafveitu - fjárfestingu í nýjum borholum á Hengilssvæðinu ásamt tengingu heimila í Árborg og Reykjanesbæ við ljósleiðara. Þá er mikill kraftur í viðskiptaþróun Carbfix.
Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með framlegð rekstursins og lántöku. Á dögunum greiddi OR upp lán sem eigendur fyrirtækisins veittu því á harðindaárunum eftir hrun og verið er að ganga frá láni hjá Norræna fjárfestingarbankanum upp á 80 milljónir Bandaríkjadala til 15 ára. Það fé fæst á mun hagstæðari kjörum en eigendalánið var og nýtist meðal annars til fjármögnunar á áðurnefndum verkefnum, sem öll eru umhverfisvæn.
Þrátt fyrir stöðugleika í rekstrarafkomu sýnir árshlutauppgjörið talsverðar breytingar á fjármagnsliðum. Þær má rekja að stærstum hluta til lækkandi álverðs frá byrjun ársins. Verð fyrir rafmagn, sem selt er Norðuráli, tengist álverði í löngum sölusamningum. Verðlækkunin á tímabilinu er reiknuð út allan samningstímann og færð í rekstrarreikning samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Áhrif þessa á heildarafkomu OR á fyrstu níu mánuðum þessa árs voru mikil, eða liðlega 2,8 milljarðar króna. Neikvæð áhrif gengis á rekstur eru um 4,6 milljarðar. Á móti kemur jákvæð færsla á eigin fé um 7,4 milljarða vegna áhrifa gengis á efnahag. Þessar færslur hafa ekki áhrif á rekstrarhagnað, sjóðstöðu eða getu fyrirtækisins til fjárfestinga en hafa áhrif á reiknaða heildarniðurstöðu árshlutauppgjörsins. Hún er nú jákvæð um 0,7 milljarða króna en var á sama tímabili árið 2019 jákvæð um 4,4 milljarða króna.
„Það siglir enginn rekstur lygnan sjó í kófinu. Við okkur blasa sífellt ný viðfangsefni tengd heimsfaraldrinum. Við bregðumst skjótt við en grípum líka þau tækifæri sem skapast til að bæta og efla starfsemina. Tiltölulega hagstætt er að ráðast í fjárfestingar um þessar mundir; tilboð eru gjarnan lægri en á þenslutímum og fjármögnun fæst á góðum kjörum.
Við ákváðum strax í fyrravetur að ráðast í sérstakar viðspyrnufjárfestingar vegna kórónuveirunnar. Viðhaldsfjárfestingar og efling og stækkun veitukerfanna eru veigamestar í ár en nú fer líka að líða að framkvæmd í einu stærsta fjárfestingaverkefni okkar um hríð; uppfærslu á 160.000 orkumælum sem eru á heimilum og hjá fyrirtækjunum á veitusvæðum okkar en gömlu mælunum verður skipt út fyrir svokallaða snjallmæla. Útskiptin eru stórt skref inn í framtíðina sem við hlökkum til að móta með viðskiptavinum okkar.
Við vorum vel undir kórónuveiruna búin með viðbragðsáætlanir og starfsfólk hefur sýnt mikla ábyrgð og virðingu fyrir mikilvægi þjónustunnar í samskiptum við viðskiptavini og sín á milli. Þannig höfum við komið í veg fyrir að faraldurinn i bitnaði á þeirri mikilvægu grunnþjónustu sem Veitur, Orka náttúrunnar og Ljósleiðarinn veita.“
H3 2016 | H3 2017 | H3 2018 | H3 2019 | H3 2020 | |
Fjárhæðir í milljónum króna |
|||||
Rekstrartekjur | 29.921 | 31.310 | 33.459 | 33.578 | 35.045 |
Rekstrarkostnaður | (11.785) | (11.744) | (12.540) | (13.)570 | (14.206) |
EBITDA | 18.136 | 19.566 | 20.919 | 20.008 | 20.839 |
Afskriftir | F3 2016 | (7.051) | (6.965) | (8.900) | (9.606) |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 10.551 | 12.515 | 13.954 | 11.108 | 11.233 |
Sjóðstreymi | |||||
Handbært fé frá rekstri | 17.305 | 18.625 | 17.217 | 19.449 | 19.416 |
Veltufé frá rekstri | 14.853 | 15.080 | 16.830 | 14.275 | 15.727 |
Kennitölur | |||||
Eiginfjárhlutfall | 39,5% | 43,7% | 46,8% | 47,1% | 47,4% |
Veltufjárhlutfall* | 0,8 | 1,0 | 1,1 | 1,0 | 0,9 |
*án álafleiðu |
Sjá lykiltölur fjármála OR-samstæðunnar ásamt fjárhagslegum markmiðum sem unnið er að.