12. des 2023
OrkuveitanÚtboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 12. desember 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB, OR180255 GB og OR161126 GB.
OR161126 GB er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og ber 7,0% fasta vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 16. nóvember 2026. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 720m kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.810 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafan var á bilinu 9,18% - 9,55%. Tilboðum að fjárhæð 866 m.kr var tekið á ávöxtunarkröfunni 9,25%.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 21.127 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.445 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% - 4,10%. Tilboðum að fjárhæð 480 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,05%.
OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.281 mkr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.940 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,51% - 3,74%. Tilboðum að fjárhæð 2.640 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,55%.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.