24. jún 2020
OrkuveitanLokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 23. júní 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR 020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.
Í heildina bárust tilboð upp á 4.595 m.kr. að nafnvirði í flokkana.
Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.405 m. kr. á bilinu 0,90% - 1,02%. Tilboðum að fjárhæð 1.415 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 0,91%. Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 2.190 m. kr. á bilinu 1,31% - 1,38%. Tilboðum að fjárhæð 1.440 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,32%.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar veita: