11. jún 2024
OrkuveitanÚtboði á grænum skuldabréfum Orkuveitunnar (Orkuveitu Reykjavíkur) lauk í dag, 11. júní 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.042 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 865 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 4,00% - 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 565 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,05%.
OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 32.346 m.kr. í flokknum.
Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.600 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,50 - 3,56%. Tilboðum að fjárhæð 1.900 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,51%.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.