4. des 2020
OrkuveitanLokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk þann 1. desember 2020. Gefin voru út skuldabréf í flokkunum OR020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.
Í heildina bárust tilboð upp á 3.890 m.kr. að nafnvirði í flokkana.
Heildartilboð í OR 020934 GB voru samtals 2.970 m.kr. á bilinu 1,28% - 1,44%. Tilboðum að fjárhæð 2.270 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,36%.
Heildartilboð í OR180255 GB voru samtals 920 m.kr. á bilinu 1,42% - 1,47%. Tilboðum að fjárhæð 620 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,43%.
Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.