12. sep 2016
OrkuveitanÚtboð á nýjum skuldabréfum og víxlum Orkuveitu Reykjavíkur fór fram 9. september 2016. Boðnir voru víxlar til tæplega 7 mánaða fyrir allt að 1.360 m.kr. og verðtryggð jafngreiðsluskuldabréf fyrir allt að 4.500 m.kr. í tveimur flokkum til tæplega 8 og 30 ára.
Orkuveita Reykjavíkur ákvað að taka tilboðum að nafnverði 2.710 m.kr. samtals og gefa út víxla í flokki OR300317 að nafnverði 1.350 m.kr. á 6,30% ávöxtunarkröfu, skuldabréf í flokki OR090524 að nafnverði 500 m.kr. á 3,37% ávöxtunarkröfu og skuldabréf í flokki OR090546 að nafnverði 860 m.kr. á 3,29% ávöxtunarkröfu. Tilboð bárust í 3.180 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 5,59-6,75% í víxlaflokkinn OR300317, ávöxtunarkröfu á bilinu 3,30-3,37% í styttri skuldabréfaflokkinn OR090524 og á bilinu 3,13-3,34% í lengri flokkinn OR090546.
Útboðið var í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Óskað verður eftir að verðbréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og verður þá fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.