7. jún 2016
OrkuveitanStjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að semja við Evrópska fjárfestingabankann um lántöku að fjárhæð 70 milljónir evra, sem svarar til um 10 milljarða króna. Lánið er á afar hagstæðum kjörum og er tekið í samræmi við fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur.
Fjárhagur OR hefur eflst talsvert síðustu ár. Aðhald og aðrar aðgerðir í rekstri hafa skilað þeim árangri að fyrirtækinu er nú kleift að fjármagna fjárfestingar og styrkja lausafjárstöðu í samræmi við áætlanir OR og dótturfélaganna með erlendu láni á hagstæðum kjörum. Gert er ráð fyrir að dregið verði á lánsfjárhæðina á næstu þremur árum. Lánið er til 15 ára.
Í samræmi við áhættustefnu OR bauð fyrirtækið einnig út skuldabréf í íslenskum krónum á dögunum.
Samþykkt stjórnar OR er gerð með fyrirvara um staðfestingu eigenda OR.