23. maí 2016
OrkuveitanAfkoma Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er stöðug og rekstrarhagnaður fyrstu þrjá mánuði ársins 2016 svipaður og síðustu ár. Tekjur hafa vaxið en á móti vega hærri laun með nýjum kjarasamningum. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 4.850 mkr. fyrstu þrjá mánuði ársins 2016 en var 4.831 mkr. á sama tímabili 2015. Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir 1. ársfjórðung 2016 var samþykktur af stjórn OR í dag.
Heildarafkoma samstæðunnar er lakari nú en í fyrra og er veigamesta skýringin lægra álverð og lægra gengi Bandaríkjadals. Það hefur áhrif á reiknað verðmæti raforkusölusamninga og færist til gjalda í fjármagnsliðum uppgjörsins. Hagnaður tímabilsins reiknast 2,5 milljarðar króna en var 3,3 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 2015.
Rekstur OR er í traustu og góðu horfi, afkoman stöðug og fjárhagurinn styrkist hægt og bítandi. Við erum á síðasta ári Plansins, aðgerðaáætlunarinnar sem hleypt var af stokkunum vorið 2011. Við höfum þegar náð meginmarkmiði þess og nú styttist í að fjárhagsleg skilyrði til arðgreiðslna verði uppfyllt. Nú stendur yfir greining á afkomu allra rekstrarþátta OR. Niðurstaða hennar verður efniviður í að móta framtíðarsýn í rekstri samstæðunnar þegar Planinu lýkur.
Fjárhæðir eru í milljónum króna | F1 2012 | F1 2013 | F1 2014* | F1 2015 | F1 2016 |
Rekstrartekjur | 10.571 | 10.650 | 11.110 | 11.336 | |
Rekstrarkostnaður | (3.386) | (3.361) | (3.880) | (4.079) | |
þ.a. orkukaup og flutningur | (1.290) | (1.441) | (1.868) | (1.635) | |
EBITDA | 7.185 | 7.288 | 7.230 | 7.257 | |
Afskriftir | (2.295) | (2.234) | (2.399) | (2.406) | |
Rekstrarhagnaður EBIT | 4.890 | 5.054 | 4.831 | 4.850 | |
Afkoma tímabilsins | (3.998) | 4.166 | 3.276 | 2.535 | |
Sjóðstreymi: | |||||
Innleystar vaxtatekjur | 58 | 88 | 172 | 2 | |
Greidd vaxtagjöld | (1.258) | (1.113) | (989) | (679) | |
Handbært fé frá rekstri | 4.713 | 5.169 | 5.246 | 4.998 | |
Veltufé frá rekstri | 5.316 | 5.289 | 6.145 | 6.129 |
*Ekki var gert uppgjör fyrir 1. ársfjórðung 2014 vegna uppskiptingar Orkuveitu Reykjavíkur.
OR Árshlutareikningur samstæðu F1 2016