30. des 2015
OrkuveitanEigendur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hafa samþykkt tillögu stjórnar um fjárhagsleg skilyrði fyrir því að arður verði greiddur til eigenda í framtíðinni. Bjarni Bjarnason forstjóri segir samþykktina afar mikilvæga og að hún sýni hve eigendur Orkuveitu Reykjavíkur telji mikilvægt að tryggja góðan rekstur og traustan fjárhag OR til framtíðar.
Eigendur OR eru þrír; Reykjavíkurborg (93,5%), Akraneskaupstaður (5,5%) og Borgarbyggð (1%). Sveitarstjórnir allra eigenda hafa nú samþykkt tillögu stjórnar um að OR greiði eigendum ekki arð nema að fjárhagsstaða fyrirtækisins uppfylli tiltekin skilyrði. Þau snúa meðal annars að eiginfjárhlutfalli, lausafjárstöðu, skuldsetningu og hlutfalli hagnaðar sem greiða má út í formi arðs. Tillagan var samþykkt samhljóða af öllum sveitarfélögunum.
Samþykkt eigendanna á arðgreiðsluskilyrðunum, sem svo rík samstaða er um, sýnir skýran vilja þeirra til að standa vörð um þann árangur sem hefur náðst í að rétta við reksturinn og koma fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur í gott horf. Sameiginlegt átak eigenda, stjórnar og starfsfólks hefur skilað því að markmiðum Plansins um bætta sjóðstöðu var náð á miðju árinu 2015, einu og hálfu ári á undan áætlun.
Hlutverk OR er að veita íbúum góða þjónustu á sanngjörnu verði. Mér sýnist að dótturfélögin – Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur – standi sig prýðilega í þeim efnum og þau stefna að því að gera enn betur.
Samþykkt um arðgreiðsluskilyrði er gerð í samræmi við ákvæði í eigendastefnu OR. Í henni er gert ráð fyrir að stjórn samþykki arðstefnu fyrir fyrirtækið, sem hljóta skuli staðfestingu eigenda. Í samþykktinni eru fjárhagslegir mælikvarðar, sem uppfylltir skulu, áður en til arðgreiðslu kemur og arðgreiðslur mega ekki brjóta gegn.
2016-2018 | 2019- | |
1.Veltufjárhlutfall | >1,0 | >1,0 |
2. Eiginfjárhlutfall | >35% | >40% |
3. FFO vaxtaþekja | >3,5 | >3,5 |
4. RCF / nettó skuldir | >11% | >13% |
5. FFO / nettó skuldir | >13% | >17% |
6. Hlutfall arðs af hagnaði hvers árs | ≤50% | ≤50% |
Samkvæmt Planinu, aðgerðaáætlun sem OR hefur unnið eftir frá árinu 2011, er ekki greiddur arður á gildistíma þess. Planið er í gildi til ársloka 2016.