25. nóv 2019
OrkuveitanHeildarafkoma samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu níu mánuðum ársins var ágæt, það er jákvæð um 4,5 milljarða króna. Lítilsháttar aukning var á tekjum en kostnaður jókst, meðal annars vegna vaxandi umsvifa á húsnæðismarkaði. Innan samstæðunnar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Árshlutareikningur samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2019 var staðfestur af stjórn OR í dag.
OR Árshlutareikningur samstæðu F3 2019
Mikið húsnæði er í byggingu á þjónustusvæði fyrirtækisins. Það ásamt nauðsynlegri endurnýjun mikilvægra hita- og vatnsveituæða endurspeglast í miklum fjárfestingum samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins. Útlit er fyrir að úr slíkum fjárfestingum dragi á næstu árum. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 13,1 milljarði króna fyrstu níu mánuði ársins en var 10,4 milljarðar króna á sama tímabili 2018.
Hvorttveggja viðhalds- og nýfjárfestingar í virkjunum og veitukerfum samstæðu OR eru á meðal verkefna sem OR fjármagnar að hluta með útgáfu grænna skuldabréfa. Sú útgáfa hófst á fyrri hluta ársins 2019. Eftirspurn hefur verið talsvert umfram framboð í útboðum á bréfunum, kaupendahópurinn fölbreyttari en áður og hagstæð kjör hafa fengist.
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála OR:
Fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaganna er traust. Það sést meðal annars á því að þrátt fyrir miklar fjárfestingar hafa Veitur orðið við áskorunum verkalýðssamtaka og samtaka atvinnurekenda um að halda verði fyrir grunnþjónustu sem stöðugustu. Þá stendur eignfjárhlutfall nánast í stað og heildarafkoman er vel viðunandi. Við sjáum líka á þeim kjörum sem OR fær á fjármálamarkaði að lánveitendur telja reksturinn traustan.
Framundan eru mikilvæg verkefni í starfseminni. Ein stærsta einstaka fjárfesting okkar á næstu árum er uppfærsla á orkumælum viðskiptavina. Hún mun taka nokkur ár en gera okkur kleift að auka og bæta þjónustuna. Við erum líka stöðugt að meta áhrif loftslagsbreytinga á okkar starfsemi, til lengri og skemmri tíma. Orkuveita Reykjavíkur hefur metnað til vera leiðandi í baráttunni við loftlagsvána. Við erum líka meta með hvaða hætti við þurfum að auka seiglu okkar til að mæta því sem verða vill í þeim efnum. Jafnframt leika Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtækin lykilhlutverk í að gera öðrum kleift að draga úr sínu kolefnisspori og þar vegur uppbygging innviða fyrir orkuskipti í samgöngum þyngst.
F3 2015 | F3 2016 | F3 2017 | F3 2018 | F3 2019 | |
---|---|---|---|---|---|
Fjárhæðir í milljónum króna |
|||||
Rekstrartekjur | 28.951 | 29.921 | 31.310 | 33.459 | 33.578 |
Rekstrarkostnaður | (10.718) | (11.785) | (11.744) | (12.540) | (13.377) |
EBITDA | 18.234 | 18.136 | 19.566 | 20.919 | 20.201 |
Afskriftir | F3 2015 | F3 2016 | (7.051) | (6.965) | (8.907) |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 12.515 | 13.954 | 11.294 | ||
28.951 | 29.921 | ||||
Reiknaður tekjuskattur tímabilsins | (10.718) | (11.785) | (3.593) | (95) | 178 |
Afkoma tímabilsins | 3.093 | 9.368 | 10.512 | 5.924 | 4.513 |