26. nóv 2018
OrkuveitanÞrátt fyrir lækkun á gjaldskrám fyrir kalt vatn og rafmagnsdreifingu í upphafi árs jukust tekjur OR samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins frá sama tímabili 2017. Aukin umsvif í samfélaginu, fjöldi nýbygginga, auknar tekjur af heildsölu rafmagns og kalt tíðarfar valda því.
Framlegð og afkoma reksturs OR og dótturfélaganna voru betri á fyrstu níu mánuðum þessa árs en 2017. Reiknaðar stærðir, sem áhrif hafa á heildarafkomu en ekki sjóðstreymi, voru hinsvegar óhagfelldari í ár en í fyrra.
Árshlutareikningur samstæðu OR var samþykktur á fundi stjórnar í dag og sýnir hann 5,9 milljarða króna hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Auk móðurfélagsins eru Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur í samstæðunni.
OR - Árshlutareikningur samstæðu F3 2018
Fjárfestingar innan samstæðunnar eru talsverðar. Auk þess að tengja fjölda nýbygginga við veitukerfin, vinna Veitur að endurnýja stofnæða hita- og vatnsveitna, boranir eftir gufu, sem tekist hafa vel, hafa staðið við virkjanir Orku náttúrunnar á Nesjavöllum og Hellisheiði og heimilum tengdum Ljósleiðaranum fjölgar.
Eins og fram kemur í fjárhagsspá OR fyrir árin 2019-2024, sem birt var 5. október síðastliðinn, er útlit fyrir stöðugleika í rekstri og afkomu Orkuveitu Reykjavíkur næstu árin þrátt fyrir verulegar fjárfestingar í uppfærslu veitukerfa og aukinni sjálfvirkni, meðal annars með snjallvæðingu notkunarmælinga.
Fjárhæðir í milljónum króna | F3 2014 | F3 2015 | F3 2016 | F3 2017 | F3 2018 |
---|---|---|---|---|---|
Rekstrartekjur | 26.960 | 28.951 | 29.921 | 31.310 | 33.459 |
Rekstrarkostnaður | (9.195) | (10.718) | (11.785) | (11.744) | (12.540) |
þar af orkukaup og flutningur | (3.644) | (4.645) | (4.555) | (4.238) | (4.404) |
EBITDA | 17.766 | 18.234 | 18.136 | 19.566 | 20.919 |
Afskriftir | (6.510) | (7.172) | (7.584) | (7.051) | (6.965) |
Rekstrarhagnaður (EBIT) | 11.256 | 11.061 | 10.551 | 12.515 | 13.954 |
Afkoma tímabilsins | 7.879 | 3.093 | 9.368 | 10.512 | 5.924 |