5. des 2023
OrkuveitanOrkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 12. desember 2023. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR161126 GB, OR020934 GB og OR180255 GB.
OR161126 GB er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með vaxtagreiðslufyrirkomulagi og ber 7,0% vexti sem greiðast fjórum sinnum á ári fram að lokagjalddaga þann 16. nóvember 2026. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 720m kr. í flokknum.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2.september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 21.127m kr. í flokknum.
OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.281 mkr. í flokknum.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 12. desember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 19. desember 2023.
Nánari upplýsingar veita:
Brynja Kolbrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Fjármála OR
sími: 516-6100
netfang: Brynja.Kolbrun.Petursdottir@or.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka
sími: 522 4008
netfang: matei.manolescu@fossar.is