28. jan 2020
OrkuveitanÞann 27. janúar 2020 skrifaði Orkuveita Reykjavíkur undir samninga um viðskiptavakt á flokki verðtryggðra skuldabréfa, OR180255 GB, við Arion Banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbankann hf. og Kviku Banka hf. Samningarnir taka gildi þann 28. janúar 2020.
Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram dag hvern, kaup- og sölutilboð í skuldabréfin í Kauphöllinni fyrir opnun markaðar. Tilboð skulu ávallt vera að lágmarki 20 m. kr. að nafnverði og skulu tilboð endurnýjuð eigi síðar en innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0%. Viðskiptavökum er þó heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða þar til stærð flokksins hefur náð tveimur milljörðum. Eigi viðskiptavaki, á einum viðskiptadegi, viðskipti fyrir samanlagt 60 m. kr. eða meira að nafnvirði í flokknum í sjálfvirkri pörun er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskiptadags.
Viðbótarútgáfa
Samkvæmt skilmálum samningsins bauðst hverjum viðskiptavaka að kaupa allt að 100m að nafnverði í OR180255 GB á sama verði og samþykkt tilboð í útboði félagsins sem haldið var þann 23. Janúar.
Viðskiptavakar nýttu sér kauprétt á OR180255 GB að nafnvirði 360 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,78%. Uppgjör viðskiptanna fer fram 28. janúar og er þá jafnframt stefnt að töku bréfanna til viðskipta á NASDAQ Iceland Sustainable Bond markaðnum.
Samhliða viðbótarútgáfunni mun OR stækka flokkinn um 400 m. kr. að nafnvirði. Bréfin verða ekki seld til fjárfesta en stækkunin er tilkomin svo OR geti staðist skuldbindingar um veitingu verðbréfalána í tengslum við áðurnefnda viðskiptavakt.
Heildarstærð OR180255 GB eftir viðbótarútgáfu til viðskiptavaka og stækkun flokksins vegna verðbréfalána er 12.371.000.000,- kr. að nafnvirði.