Umsóknir

Beiðni um upplýsingar

Samkvæmt upplýsingalögunum á almenningur rétt til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum  sem varða tiltekið mál. Sá réttur takmarkast af ákvæðum 6.–10. gr. laganna, sem snúa m.a. að gögnum um málefni starfsmanna auk þess sem fyrirtækinu er almennt ekki skylt að afhenda vinnugögn. Einkahagsmunir einstaklinga og fyrirtækja og almannahagsmunir geta takmarkað þennan rétt og gert Orkuveitunni óheimilt að afhenda tiltekin gögn. Af því að almenningur á Orkuveituna getur verið að við synjum beiðni um gögn ef það t.d. skaðar samkeppnisstöðu Orkuveitunnar eða dótturfyrirtækja.

Ef þú vilt fá aðgang að gögnum þá biðjum við þig að fylla út þar til gert eyðublað. Á því tiltekur þú gögnin sem þú vilt fá aðgang að eða efni þess máls sem þau tilheyra með nægilega skýrum hætti svo við getum áttað okkur sem best á því hvað þú ert að biðja um. Eyðublaðið sendir þú svo á beidniumupplysingar@or.is. Við afgreiðum beiðnina þína svo fljótt sem verða má.

Beiðni um aðgang að gögnum.

Ljós- og kvikmyndatökur

Ljósmynda- og kvikmyndatökur á jörðum Orkuveitunnar í atvinnuskyni eru háðar samþykki.

Orkuveitunni er falin mikil ábyrgð á þeim auðlindum sem hún nýtir. Ábyrgðin felst í því að vinna eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og því að tryggja sjálfbæra nýtingu, það er að komandi kynslóðir búi við sömu tækifæri og núlifandi kynslóðir til að nýta auðlindirnar og að unnt sé að staðfesta að þannig sé að verki staðið.

Vinsamlegast skráðu þig inn hér að neðan ef þú óskar eftir að taka ljósmyndir eða kvikmynda á jörðum Orkuveitunnar.

Leyfisumsókn fyrir ljós- og kvikmyndatökur í atvinnuskyni.