Gæðastefna

[Stefna yfirfarin og samþykkt á stjórnarfundi 24.04.2023]

Stefna Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er að mæta þörfum viðskiptavina með því að miðla vörum og góðri þjónustu með hagkvæmum og öruggum hætti.

Stöðugar umbætur, flæði ferla og lífsferilshugsun liggja til grundvallar í allri starfseminni.

Lífsferilshugsun felur í sér heildarferilinn allt frá upplifun viðskiptavinar, upplýsingagjöf og að vinna með hliðsjón af öryggi, hagkvæmni, vistspori og förgun á líftíma.

Orkuveitan leggur sérstaka áherslu á:

- virðisaukandi þjónustu

- faglega verkefnastjórnun, sem byggir ma. á AACE* nálguninni fyrir kostnaðarstjórnun verkefna

- hagkvæma viðhalds- og eignastjórnun

- skjala- og upplýsingastjórnun

- notkun á tækni til að auka virði og hagkvæmni

Gæðastefnan byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og sett fram til samræmis við eigendastefnu.

*AACE: The Association for the Advancement of Cost Engineering

Mæling:

- Ánægja viðskiptavina (stefnumælikvarði)

- Hlutfall verkefna sem standast kostnaðaráætlun, tímaáætlun og virkni

- Áreiðanleiki ferla

- Hlutfall frávika við úttekt lagað innan 14 daga

- Skilvirkni ferla (stefnumælikvarði)

Tilvísanir:

SKI-100; Ábyrgðir i vottuðum stjórnunarkerfum.

SKI-205; Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001).