Beiðni um aðgang að upplýsingum

Viðskiptavinur getur óskað eftir því að fá upplýsingar um þá vinnslu sem á sér stað hjá Orkuveitunni um hann enda standi hagsmunir annarra ekki í vegi fyrir því. Beiðni þar um skal afgreidd eins fljótt og auðið er og ekki síðar en innan mánaðar frá móttöku beiðni viðskiptavinar þar um.

Ef þú vilt fá aðgang að gögnum þá biðjum við þig að fylla út þar til gert eyðublað. Á því tiltekur þú gögnin sem þú vilt fá aðgang að eða efni þess máls sem þau tilheyra með nægilega skýrum hætti svo við getum áttað okkur sem best á því hvað þú ert að biðja um. Eyðublaðið sendir þú svo á beidniumupplysingar@or.is. Við afgreiðum beiðnina þína svo fljótt sem verða má.

Beiðni um aðgang að gögnum