19. jan 2023
OrkuveitanBorgarstjórn Reykjavíkur kaus 17. janúar sl. Ragnhildi Öldu Vilhjálmsdóttur borgarfulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og tekur hún sæti Kjartans Magnússonar í stjórninni. Stjórnin er nú þannig skipuð:
Gylfi Magnússon, prófessor, formaður stjórnar
Vala Valtýsdóttir, lögmaður, varaformaður stjórnar
Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi
Skúli Helgason, borgarfulltrúi
Valgarður L. Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness
Þórður Gunnarsson, auðlindahagfræðingur
Guðveig Lind Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar, er áheyrnarfulltrúi fyrir hönd Borgarbyggðar og Unnur Líndal Karlsdóttir er áheyrnarfulltrúi starfsfólks.