12. sep 2022
OrkuveitanGötulýsing Orku náttúrunnar er rekstrareining sem hefur þjónustað sveitarfélög, opinberar stofnanir og einkaaðila í áratugi. Mörg af stærstu sveitarfélögum landsins treysta á þjónustu Orku náttúrunnar sem hefur umsjón með framkvæmd og viðhaldi götulýsingar.
Götulýsing Orku náttúrunnar leitast eftir að veita afburðar þjónustu í viðhaldi götuljósa á öruggan, hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Til að nálgast frekari upplýsingar um söluferlið og gögn um rekstur götulýsingar ON eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Deloitte ehf., ráðgjafa Orku náttúrunnar í söluferlinu, með tölvupósti á netfangið gotulysing@deloitte.is.
Frestur til að nálgast frekari gögn og upplýsingar um söluferlið er til og með 30. september 2022.