11. maí 2022
OrkuveitanVið hjá OR-samstæðunni eigum vísindafólk og sérfræðinga í heimsklassa. Veitur, Carbfix, ON og Ljósleiðarinn vinna öll að fjölda verkefna sem snúa að því að bæta lífsgæði Íslendinga og andrúmsloftið í heiminum. Á vísindadegi OR-samstæðunnar ætlum við að segja frá nokkrum af þessum áhugaverðu verkefnum.
Viðburðurinn fer fram 20.maí í Grósku í Vatnsmýrinni, hefst kl. 9:30 og stendur til hádegis. Formleg skráning er hér, svo við getum áætlað hæfilegt magn af veitingum:
https://forms.gle/Z5u3SqpW4poZPh6h6
Við bjóðum upp á átta áhugaverð erindi sem fjalla um vatnsgæði, Carbfix, djúpborun, stafræn tól og tæki, jarðhitagarð, hvernig við hlöðum betur, nýtingu á glatvarma og ljósleiðaravæðingu á eldfjallaeyju. Fundarstjóri verður Eiríkur Hjálmarsson.
Til að poppa þetta upp reyndum við að finna skírskotanir í íslensk popplög þegar við völdum yfirskrift á hvert erindi. Enda eru þessir fyrirlesarar algjörar stjörnur!
Verið öll hjartanlega velkomin, léttar kaffiveitingar og hádegisverður fyrir gesti.
Erindi:
Vísindadagurinn er hluti af nýsköpunarviku – www.innovationweek.is