25. mar 2022
Orkuveitan„Ef við nýtum þær breytingar sem loftslagsváin knýr okkur í til að breyta fleiru til betri háttar, þá verður glíman við loftalagsmálin miklu skemmtilegri,“ segir Bjarni Bjarnason forstjóri OR í viðtali við Fréttablaðið í dag. Í sérstöku fylgiblaði um samfélagsábyrgð fyrirtækja er rætt við Bjarna og Eddu Sif Pind Aradóttur, framkvæmdastýru Carbfix.
Í viðtalinu nefnir Bjarni fleiri lykilatriði sjálfbærs reksturs á borð við það hvernig Orka náttúrunnar Veitur styðja við hringrásarhagkerfið. Þá er minnt þar á þau Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem OR hefur lýst sérstökum stuðningi við og bent á nýútkomna Ársskýrslu OR þar sem gerð er grein fyrir sjálfbærniþáttum rekstursins með kerfisbundnum hætti.
Edda Sif rekur í viðtalinu merkilega þróunarsögu Carbfix sem á hálfum öðrum áratug hefur þróast úr óljósri hugmynd vísindafólks yfir í metnaðarfullt sprotafyrirtæki sem miklar vonir eru bundnar við í baráttunni við loftslagsvána.