16. des 2019
OrkuveitanFrá 1. janúar 2020 mun Orkuveita Reykjavíkur hætta útgáfu og innheimtu orkureikninga fyrir hönd dótturfélaga sinna, Veitna og Orku náttúrunnar. Þessi uppskipting reikninga dótturfélaga OR er liður í því að skýrara sé hvaðan þjónustan er keypt og fyrir hvað er verið að greiða.
Nánari upplýsingar má finna á þessum síðum:
Frá lögskipaðri uppskiptingu Orkuveitu Reykjavíkur í ársbyrjun 2014 hefur OR gefið út eina kröfu sem hefur í flestum tilvikum innihaldið reikninga hvorttveggja frá Orku náttúrunnar og veitum. Viðskiptavinir munu frá áramótunum fá þessa undirliggjandi reikninga hvorn í sínu lagi; fyrir söluhluta rafmagnsins frá Orku náttúrunnar og fyrir rafmagnsdreifingu og heitt vatn frá Veitum.
Þessi breyting kallar ekki á neinar aðgerðir af hálfu viðskiptavina fyrirtækjanna og sá greiðslumáti sem fólk hefur kosið helst óbreyttur.