19. maí 2021
OrkuveitanCarbfix og danska skipafélagið Dan-Unity CO2 hafa gert með sér samning um flutning á CO2 til förgunar í Coda Terminal móttöku- og förgunarmiðstöð Carbfix í Straumsvík. Skipafélagið sem hefur áratuga reynslu í flutningi á ýmsum gastegundum á sjó mun flytja CO2 á sérhönnuðum skipum sem ganga fyrir vistvænu eldsneyti. Kolefnissporið sem hlýst af skipaflutningunum verður aðeins um 3-6% af því CO2 sem fargað verður. Gert er ráð fyrir að fyrstu skipin byrji að sigla hingað til lands frá Norður Evrópu árið 2025.
Móttöku- og förgunarmiðstöðin Coda Terminal verður sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu en þar verður Carbfix tækninni beitt til varanlegrar steinrenningar á CO2. Fyrsti fasi verkefnisins er nú þegar hafinn en gert er ráð fyrir að hægt verði að farga allt að 3 milljónum tonna árlega í Straumsvík árið 2030.
Hvert skip mun flytja um 12-20 þúsund tonn af CO2 á vökvaformi en áætlaður kostnaður við flutning og förgun í Straumsvík er 30 til 65 evrur á hvert tonn. Til samanburðar kostar um 100 evrur að farga hverju tonni í sambærilegu verkefni í Noregi sem kallast Northern Lights.
„Við hjá Dan-Unity CO2 teljum samstarf okkar við Carbfix vera stórkostlegt tækifæri til að lækka magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu hratt og örugglega. Sem leiðandi fyrirtæki í sjóflutningum byggjum við á mjög víðtækri sérfræðiþekkingu og tryggjum að sjóflutningar gegni mikilvægu hlutverki í flutningi á CO2. Sem leiðtogi á sviði alþjóðlegra sjóflutninga hefur Danmörk einstakt tækifæri til að gegna leiðtogahlutverki sem byggir á reynslu og nýrri tækni. Danskar loftslagslausnir eru nú þegar þekktar á heimsvísu, má þar nefna græna orkugjafa sem knýja flutningaskip. Því er ljóst að saman getum við styrkt stöðu okkar.“
Steffen Jacobsen, forstjóri Evergas
„Við erum afskaplega ánægð með að hafa fengið Dan-Unity CO2 til liðs við okkur. Þetta er rótgróið fyrirtæki með áratuga reynslu í flutningum á gösum á sjó og því afar dýrmæt reynsla sem við erum að fá inn í verkefnið. Danmörk er að leggja mikla áherslu á loftslagsmálin og vonandi er þetta aðeins byrjunin á samstarfi Íslands og Danmörku í baráttunni gegn loftslagsvánni. Það skiptir okkur miklu máli að fá með okkur í þetta verkefni aðila sem sýna í verki að þeir ætla að taka þátt í að berjast gegn loftslagsvánni. Dan-Unity CO2 mun flytja hingað til lands CO2 á umhverfisvænan hátt sem er mikið fagnaðarefni.“
Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix