3. nóv 2021
OrkuveitanLoftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, hófst í Glasgow á sunnudag og stendur til 12. nóvember. Fulltrúar frá Orku náttúrunnar og Carbfix verða á svæðinu og munu beita sér fyrir því að halda upplýstri umræðu um vandann sem þjóðir standa frammi fyrir sem og að mynda tengsl og taka þátt í viðuburðum. Edda Pind Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix mun t.a.m taka þátt í umræðum á vegum Nordic Pavillion, Sustainable innovation forum og vera í beinni útsendingu Bloomberg frá ráðstefnunni.
Ljóst er að auka þarf græna raforkuframleiðslu til að mæta markmiðum Íslands um að verða óháð jarðefnaeldsneyti á lofti, láði og legi fyrir árið 2050.
„Við erum stolt af því að vera þar í fararbroddi og vonum auðvitað að á ráðstefnunni takist að endurreisa traust á sameiginlegar alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum. Ráðstefnan snýst um að byggja upp samstöðu og aukinn metnað, sem og trú á ferlið sem framundan er,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra ON.
Stór skref í báráttunni gegn Hafarahlýnun
Orku náttúrunnar leggur sitt af mörkum þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum og er fyrirmynd margra annarra orkufyrirtækja.
„Hleðslunetið okkar fyrir rafbíla er sístækkandi en við horfum líka til vetnis. Vetnisbílar eru búnir efnarafölum sem breyta vetninu í rafmagn og svo rafmótorum, sem eru í örri þróun. Vetnið virðist kjörið fyrir stærri farartæki á láði og legi og jafnvel flugvélar. Til að búa til vetni þarf vatn og rafmagn. Hvorttveggja er til staðar í nokkrum mæli í Hellisheiðarvirkjun og þar höfum við hafið vetnisvinnslu,“ segir Berglind.
Ákveðin tímamót urðu í baráttunni gegn hlýnun jarðar þegar svissneska nýsköpunarfyrirtækið Climeworks sem sérhæfir sig í að fanga koldíoxíð úr andrúmslofti og Carbfix sem sér um förgunina gerðu með sér samning. Orca lofthreinsistöð Climeworks er nú í fullum gangi á Hellisheiði.
Jarðhitagarður ON
Starfsemi Climeworks á Íslandi fer fram í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar þar sem margt hugvitsfólk og frumkvöðlar sjá tækifæri í þeim straumum sem verða til við nýtingu háhitans. Þar sameinast jarðhitatengd nýsköpun, betri nýting auðlindarinnar og verðmætasköpun. Sem dæmi má nefna að við þekkjum kísil aðallega sem vandræði í jarðhitanýtingu. Hann fellur út úr gufu eða vatni og útfellingarnar hindra rennsli um lagnir. GeoSilica er frumkvöðlafyrirtæki sem sá tækifæri þar sem við sáum vesen og selur heilsuvörur af ýmsu tagi úr kísli fengnum úr Hellisheiðarvirkjun.
„Það er mikilvægt að deila þekkingu og segja frá lausnum því það er eina leiðin til þess að ná markmiðum okkar. Það er engin ein lausn við vandanum heldur eru þær margar og við þurfum á þeim öllum að halda. Það er því einlæg von mín að niðurstaðan eftir COP26 verði jákvæð og ríki heims verði nær hvert öðru þegar kemur að loftslagsvandanum. Það er samt mikilvægt að hafa í huga að afdrifaríkustu ákvarðanirnar í loftslagsmálum eru teknar heima fyrir.“