11. nóv 2022
OrkuveitanOrkuveita Reykjavíkur er 100 ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki sem leggur grunn að lífsgæðum á Íslandi. Leitað er eftir þaulreyndri, úrræðagóðri og framsýnni manneskju til að leiða kraftmikinn hóp fagfólks svo fyrirtæki samstæðunnar dafni sem best.
Sjálfbærni og samfélagsábyrgð vega þungt í allri starfsemi samstæðunnar.
Orkuveita Reykjavíkur samanstendur af fimm fyrirtækjum; Orkuveitu Reykjavíkur, Veitum, Orku náttúrunnar, Ljósleiðaranum og Carbfix. Forstýra eða forstjóri ber ábyrgð á Orkuveitusamstæðunni í heild sinni.
Heildareignir OR nema 420 milljörðum króna, velta er um 60 milljarðar og eigið fé er 220 milljarðar. Viðskiptavinir samstæðunnar eru um tveir þriðju landsmanna.
Forstýra - Forstjóri:
Hæfni:
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2022. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Hilmar G. Hjaltason; hilmar@vinnvinn.is og Auður Bjarnadóttir; audur@vinnvinn.is
Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra mannauðs og menningar OR; ellenyr@or.is
Hægt er að sækja um hér.