23. apr 2019
OrkuveitanSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur fellt úrskurð um álagningu vatnsgjalds í Reykjavík árið 2016. Frá þeim tíma hefur vatnsgjald í Reykjavík tvisvar sinnum verið lækkað umtalsvert; um 11,2% í byrjun árs 2017 og aftur um 10% í byrjun árs 2018.
Í framhaldi af úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, sem féll um miðjan síðasta mánuð, hefur Orkuveita Reykjavíkur ítrekað óskað eftir leiðbeiningum frá ráðuneytinu um hvað leggja skuli til grundvallar við álagningu vatnsgjalds. Í lögum um vatnsveitur sveitarfélaga er sagt að nánar skuli kveðið á um þetta atriði í reglugerð. Slík reglugerð hefur ekki verið sett og hefur OR vísað til leiðbeiningarskyldu stjórnvalda í erindum sínum til ráðuneytisins.
Vegna þessarar óvissu hefur starfsfólk OR átt fund með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samorku – samtaka orku- og veitufyrirtækja. Sveitarfélög sem reka eigin vatnsveitur og veitufyrirtæki eiga rétt eins og almenningur talsvert undir því að reglur stjórnvalda séu skýrar hvað þetta varðar; að ekki sé bara sagt hvað megi ekki, heldur fáist frá stjórnvöldum leiðbeiningar sem nýtist vatnsveitum og viðskiptavinum þeirra.
Gjaldskrár vatnsveitu hjá OR, sem reknar eru af dótturfyrirtækinu Veitum, hafa í grundvallaratriðum fylgt þróun vísitölu byggingakostnaðar síðasta áratuginn. Tvisvar á síðustu árum hafa verið teknar ákvarðanir um sérstakar lækkanir, í ársbyrjun 2017 og aftur 2018. Samanlögð áhrif allra gjaldskrárbreytinga vatnsveitu í Reykjavík frá árslokum 2016 til dagsins í dag svara til 13,1% lækkunar.
Ráðuneytið vísaði frá kröfu kæranda um endurgreiðslu. Þar sem gjaldskrár hafa verið lækkaðar í takti við batnandi afkomu vatnsveiturekstursins virðast fjárhagsleg áhrif úrskurðarins við fyrstu skoðun óveruleg. Þessi áhrif skýrast þegar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur veitt leiðsögn um gjaldskrárnar.