16. sep 2024
OrkuveitanAuðlindir íslenskrar náttúru eru undirstaða reksturs Orkuveitunnar og lífsgæða þess samfélags sem fyrirtækið þjónar. Athafnasvæði Orkuveitunnar nær frá Grundarfirði á Vesturlandi og að Hvolsvelli á Suðurlandi. Stór hluti þessa landssvæðis er innan verndarsvæða, það eru vatnsverndarsvæði, friðlýst svæði, svæði á náttúruminjaskrá og svæði sem lúta sérstakri vernd. Líffræðileg fjölbreytni er órjúfanlegur hluti þessara svæða.
Undanfarin misseri hefur Orkuveitan þróað markmið og mælikvarða um stöðu líffræðilegrar fjölbreytni á lendum og athafnasvæðum fyrirtækisins. Eftirspurn er eftir þessum upplýsingum því þær gera stjórnendum Orkuveitunnar, leyfisveitendum og lána- og fjármálastofnunum kleift að taka ákvarðanir um orkuöflun og fjárfestingar þeim tengdum, á ábyrgan hátt.
Líffræðileg fjölbreytni og auðlindamælikvarði Orkuveitunnar
Líffræðileg fjölbreytni er hluti af auðlindamælikvarða Orkuveitunnar. Það þýðir að lagt er mat á þá áhættu sem öflun heits vatns til húshitunar, öflun kalds vatns til neyslu, framleiðsla raforku og rekstur fráveitu, ljósleiðara og kolefnisbindingar hefur í för með sér fyrir lífríkið. Einnig er horft til mögulegra tækifæra sem geta falist í þessari starfsemi fyrir líffræðilega fjölbreytni.
Dæmi um áhættu sem orkuöflun og rekstur Orkuveitunnar hefur fyrir líffræðilega fjölbreytni er:
Dæmi um tækifæri eru hins vegar:
Líffræðileg fjölbreytni hefur áhrif á afkomu Orkuveitunnar
Öflugt og fjölbreytt búsvæði og lífríki hafa áhrif á afkomu fyrirtækja á borð við Orkuveituna. Dæmi um það er að Orkuveitan treystir á að það vatn sem aflað er til neyslu íbúa og atvinnulífs sé hreint og heilnæmt. Gögn um líffræðilega fjölbreytni varpa ljósi á hvernig búsvæði og tegundir gróðurs, dýra og annars lífríkis leggja sitt af mörkum til að binda jarðveg og halda honum stöðugum. Lífríkið getur þannig dregið út hættu á að jarðvegsörverur berist í vatnsból og mengi neysluvatn.
Með því að greina gögn um líffræðilega fjölbreytni hefur Orkuveitan til dæmis varpað ljósi á umhverfis- og rekstraráhættu vegna varmamengunar frá Nesjavallavirkjun við strönd Þingvallavatn og að hvaða marki uppfyllt séu ákvæði starfsleyfa og náttúruverndarlaga. Þekking á áhættunni hefur nú þegar leitt til framþróunar á niðurdælingu á jarðhitavatni við virkjanir á Hengilssvæðinu. Enn fremur er unnið að nýsköpunarverkefni með blöndun jarðhitavatns frá virkjunum við hitaveituvatn á höfuðborgarsvæðinu. Takist þetta verkefni mun rekstrarfyrirkomulag hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu gjörbreytast til hins betra ásamt varmaframleiðslu virkjananna. Þannig er stefnt að því til frambúðar að nýta betur þann varma sem framleiddur er í virkjunum sem mun með tímanum draga úr varmamengun við strönd Þingvallavatns.
Sjálfbærni er góður „business“
Skilningur stjórnenda og starfsfólks Orkuveitunnar á mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni á heilsu vistkerfa gerir fyrirtækinu kleift að tileinka sér sjálfbærari starfshætti. Það leiðir til sveigjanlegri viðskiptalíkana, nýrra grænna viðskiptatækifæra sem eru fallin til þess að takast á við loftslagsbreytingar, hnignun vistkerfa og auknar opinberar kröfur.
Dæmin sem tilgreind eru hér á undan sýna að Orkuveitan stendur við skuldbindingar sínar um að standa vörð um vistkerfi og íslenska náttúru. Það eflir traust, bætir orðspor, laðar að viðskiptavini og gott starfsfólk og stuðlar þannig að langtíma seiglu og þrautseigju fyrirtækisins.
Sjálfbærni er sannanlega góður „business“.
Höfundur: Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitunnar.