28. ágú 2019
OrkuveitanÞann 14. ágúst 2019 skrifaði Orkuveita Reykjavíkur undir samninga um viðskiptavakt á nýjum flokki verðtryggðra skuldabréfa, OR020934 GB, við Arion Banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbankann hf. og Kviku Banka hf.
Samkvæmt skilmálum samningsins bauðst hverjum viðskiptavaka að kaupa allt að 100m að nafnverði í hinum nýja flokki skuldabréfa á sama verði og samþykkt tilboð í útboði félagsins sem haldið var þann 27. ágúst.
Viðskiptavakar nýttu sér í dag kauprétt á bréfum í flokknum OR020934 GB að nafnvirði 260 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,79%. Uppgjör viðskiptanna fer fram 2. september og er þá jafnframt stefnt að töku bréfanna til viðskipta á NASDAQ Iceland Sustainable Bond markaðnum.
Samhliða viðbótarútgáfunni mun OR stækka flokkinn um 400 m. kr. að nafnvirði. Bréfin verða ekki seld til fjárfesta en stækkunin er tilkomin svo OR geti staðist skuldbindingar um veitingu verðbréfalána í tengslum við áðurnefnda viðskiptavakt.
Heildarstærð OR020934 GB eftir viðbótarútgáfu til viðskiptavaka og stækkun flokksins vegna verðbréfalána er 2.700.000.000,- kr. að nafnvirði.