Útboð á grænum skuldabréfum 12. mars

4. mar 2024

Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 12. mars 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 21.607 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 29.921 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 12. mars 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 19. mars 2024.

Nánari upplýsingar veita:

Brynja Kolbrún Pétursdóttir, framkvæmdastýra Fjármála OR, sími: 516 6100, netfang: Brynja.Kolbrun.Petursdottir@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is